Blog Layout

 

…til að droppa við á Joe & The Juice á Iceland Airwaves!

 

1. Besti barinn til að byrja á!

 

Ekkert sem gírar upp stemminguna meira en að taka skot á línuna. Við bjóðum upp á engifer, túrmerik og rauðrófuskot sem styrkja ofnæmiskerfið og gera þig skothelda/n fyrir helgina!

 

 

2. Ferskasta stöffið!

 

Bjóðum ekki bara ferskasta fæðið heldur einnig brakandi ferska listamenn, Siggy er þar á meðal en hún kemur fram á off-venue tónleikum Joe & The Juice á laugardaginn. Nánar hér .

 

 

3. Kaffi á klink

 

Það er skítkalt úti og bollinn er aðeins á 350 kr fyrir miðahafa! Þarf að segja meira?
Hvetjum alla til að kíkja í einn heitann og halda út í frekari hátíðarhöld í sínu „koffínasta“ pússi!

 

 

4. Franskaðu þig upp með Haka

 

Nei, engar franskar á okkar matseðli, en smá franska í boði Haka sem er að gera það gott með laginu „S’il vous plait“ . Franskan er annáluð fyrir að vera tungumál ástarinnar og því tilvalið að mæta og bæta við orðaforðann til að slípa upp á viðreynslur helgarinnar. Haki kemur fram á off-venue tónleikum Joe & The Juice á laugardaginn.

 

 

5. Því við erum bara fimm mín frá þér!

 

Erum að hámarki í 5 mínútna fjarlægð frá öllum tónleikastöðum. Enginn tími til að flækja málin, beinustu leið með þig á Joe & The Juice í besta og fljótasta skyndibitann. Þess má geta að hátíðargestir fá 15% afslátt gegn framvísun armbandsins – hollt og gott fyrir þig og veskið þitt!

 

 

6. fyrir 6ytime

Algjört must að skella sér á einn „Sex Me Up“ með ástaraldin, engifer og eplum, rétt fyrir klukkan 6 á föstudaginn. Hjálpar ekkert endilega ástarlífinu, en fer bara svo vel með „ Bedroom Vibes “ á off-venue tónleikum Joe & The Juice  þar sem  Sylviu Erla  syngur um það sem við þráum öll!

 

7. Hlustaðu á brauðið 24/7!

Hvort sem þú ert „Joe’s Club“, „Tunacado“ eða „Serrano“ samlokutýpan þá breytir það engu þegar kemur að 24/7 , sem heldur sig bara við einfaldleikann og rappar um brauð. Bara brauð. Ekki okkar brauð, heldur „ BRAUÐIÐ!“  24/7 kemur fram á off-venue tónleikum Joe & The Juice á föstudeginum.

 

8. Partí með GKR

Ekki missa af „ partí “ með GKR sem kemur fram á off-venue tónleikum Joe & The Juice á föstudaginn. Þetta verður klárlega partí til að „ tala um “, enda vill hann alltaf „ meira “ – Sjáið þið hvað við gerðum þarna….?

 

9. Takk og hress!

Það er mikilvægt að staldra stundum við og vera þakklátur – t.d. fyrir þessa geggjuðu hátíð sem fagnar 20 ára afmæli í ár! Þá er hvergi betra að láta þakklætið streyma um sig en á off-venue tónleikum Joe & The Juice með  Soffíu Björg  þar sem hún tekur lagið „ Grateful “ og halda svo þakklát og hress inn í helgina!

9 & hálf

Þú átt mjög líklega leið hjá, afhverju ekki bara að droppa við?

…og miðahafar munið, það er „special price for you my friends!“

The post 9 & hálf ástæða… appeared first on Joe & the juice.

Share by: